Sjónræn skynjun og vangaveltur um afstæði litanna eru grunnstefin í leiðsögn Eygló Harðardóttur um sýninguna Hörður. Fókusnum verður beint að innbyrðis áhrifum lita á hvern annan í völdum verkum Harðar Ágústssonar, litanotkun verkanna borin saman og og ólík lita-áhrif og lita-hlutföll skoðuð.
Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.
Eygló Harðardóttir er myndlistamaður sem leggur áherslu á listafræði í verkum sínum. Hún hefur, frá alamótum, kennt námskeið í litaskynjun og seinna þrívíðri litavinnu bæði við Myndlistaskólann og Listaháskóla Íslands.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hérlendis og erlendis. Hún hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 fyrir einkasýninguna „Annað rými” sem haldin var í Nýlistasafninu 2018. Verk hennar eru varðveitt í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Ríkisútvarpinu, Women’s Studio Workshop í New York, Kultuurikauppila í Finnlandi og The Metropolitan Museum í New York.














