Ljóðstafur Jóns úr Vör 2026

Una Björk Kjerúlf

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Framlag mitt í minningarbanka nærri útdauðra hljóða

Skrjuff, klonk,
fssst, dadonk.
Ég framkalla gömul bakgrunnshljóð eftir minni.
Lokhljóð úr málmgini.

Skrjuff, klonk.
Stundum fssst, dadonk
– eftir magni og undirlagi.

Hljóð sem var boðberi frétta
utan úr heimi,
úr næsta bæ,
næstu götu,
frá gömlum frænkum,
stofnunum,
pennavinum.
Innan úr draumum,
óskum og vonum
um lukku
(ef þú slítur ekki keðjuna).

Frá hendi til handar,
húsi til húss,
bárust boð.
Og heimurinn stækkaði
með hverjum skelli úr gómi ginsins.
Hægt og bítandi,
bréf fyrir bréf.
Skrifuð af natni,
skyldu,
þakklæti,
áminningu,
söknuði.
Að nóttu,
í flýti,
með lykkjum,
á útlensku,
á dulmáli,
villevekk,
virðingarfyllst,
með kærri kveðju.

Skrjuff, klonk.
Fssst, dadonk.
Hljóð óvissu og eftirvæntingar.
Eins og biðin eftir pökkum á jólum
eða skilaboð á miðilsfundi.
(Er þetta til mín?)

Hver heldur utan um gömul hljóð
sem eru við það að hverfa?
Hvaða stofnun tekur við þeim?

Ég skráset hljóðin,
færi upplifun þeirra í orð.
Póstnálægð.
Fjölrituð blöðin ber ég út,
hús eftir hús,
götu eftir götu.

Í hverfinu bergmálar
skrjuff, klonk,
fssst, dadonk.

Una Björk Kjerúlf

Sigrún Björnsdóttir

2. verðlaun

Vængur brýtur sér leið

X

Jón Knútur Ámundason

3. verðlaun

Hamfarahlaup

X

SÉRSTAKAR VIÐURKENNINGAR

Alltaf í blaðinu eftir Sigrúnu Björnsdóttur

x

Angistarljóð (mínar raunir og kaunir) eftir Bjargeyju Ólafsdóttur

x

Hofsóleyjar eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur

x

Sumt situr á hakanum eftir Ragnar H. Blöndal

x