08.feb 2025 13:00 - 15:00

Bókasafn Kópavogs

Lindasafn, Núpalind 7, 201 Kópavogi

„Hvissssss! Beygðu þig niður, þarna þýtur hún hjá!“ 

Á skutlusmiðju ÞYKJÓ setjum við okkur í spor flugvélahönnuða og verkfræðinga. Hvaða form flýgur lengst? Hvað gefur skutlunni byr undir báða vængi? Viltu setja glugga á þína skutlu?

Smiðjan fer fram á Lindasafni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar. Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir.

Á meðal nýlegra verkefna er innsetningin Hljóðhimnar í Hörpu, húsgagnalínurnar Kyrrðarrými og Hreiður og þátttökuverkefnið Gullplatan: Sendum tónlist út í geim! ÞYKJÓ hlaut Hönnunarverðlaunin árið 2024 og var einnig tilnefnt til sömu verðlauna 2021 og 2022. Eins hlaut teymið tilnefningu til alþjóðlegu YAM verðlaunanna.

Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustund á laugardögum sem styrktar eru af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

21
mar
Salurinn
28
mar
Gerðarsafn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

21
mar
Salurinn
21
mar
Bókasafn Kópavogs
21
mar
Salurinn
21
mar
Gerðarsafn
23
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

21
mar
Bókasafn Kópavogs
23
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira