Aðdáandaklúbbur Jane Austen var stofnaður í kvöld á Bókasafni Kópavogs. Fjöldi gesta fór fram úr björtustu vonum en ljóst er að Austen á sér enn fjölda aðdáenda.
„Ég hafði vonir til þess að það myndu kannski fimmtíu manns mæta og við myndum stofna svona sætan og krúttlegan aðdáendaklúbb, en þetta voru meira svona 150 svo ég þarf að fara að hugsa stærra“ sagði Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og einlægur aðdáandi Jane Austen sem stendur að stofnun aðdáendaklúbbsins á Íslandi. Stofnfundurinn var haldinn í Bókasafni Kópavogs og við frekari grennslan var gestafjöldinn nær 200.
250 ár verða liðin frá fæðingardegi Austen þann 16. desember í ár og þótti því tilvalið að stofna klúbbinn í ár. Ætlunin er að bjóða upp á fjölbreytta viðburði og er stjórn klúbbsins með fullt af hugmyndum tengdum bókunum, lífspeki og áhugamálum Austen sem þær eru farnar að skoða, enda komu margir að tali við Kristínu eftir fundinn og fögnuðu framtakinu. „Rétt eins margir halda með Manchester United og koma saman til þess að horfa á leiki og spjalla um hina og þessa leikmenn þá sjáum við að það eru ansi mörg sem eru til í að hittast og ræða um Jane Austen“ bætti Kristín Linda við.
Silja Aðalsteinsdóttir segist vera meðvitundarlítil af hamingju en hún var gerð að heiðursfélaga klúbbsins. Silja hefur þýtt m.a. Hroka og hleypidóma eftir Jane Austen sem kom út árið 1988.
Aðspurð segir hún Elisabeth Bennet vera uppáhaldspersónu sína úr bókum Austen. „Hún hefur allt til að bera, sem maður vildi eiga í vinkonu sinni eða í sjálfum sér. Hún er greind, fyndin, full af skoðunum og lífsgleði og hún er tilbúin að skipta um skoðun ef hún hefur rangt fyrir sér, hún er réttsýn þó hún sé frek og hortug stelpa eins og Lafði Debourg segir um hana, en hún er bara dásamleg manneskja. Hún er nútímakona og Austen hefur skapað einhverja framtíðarsýn á sínum tíma. Bennet lét ekki aðstæður buga sig“.
Kristín Linda er starfandi sálfræðingur og segist tengja vel við skrif Austen því líkt og hún í sínu starfi hjálpar Austen persónum sínum og að þróast, þroskast og vinna með sjálft sig. En hvað varðar uppáhaldspersónu þá er það hinn þögli, stífi og strangi Mr. Darcy en hann kemur alltaf við kvennhjartað mitt.
Var Jane Austen feministi? Já segja þær báðar í kór, þær voru alltaf aðal, kvennsöguhetjurnar hennar, sterkar og númer 1, 2 og 3 aldrei fórnarlömb.
Lísa Z. Valdimarsdóttir og starfsfólk hennar áttu fullt í fangi að taka á móti fólki í húsið og fylgja eftir skráningu í klúbbinn því að fjöldinn fór fram úr björtustu vonum. Þann 16. desember verður svo haldið hátíðlega upp á afmælið og miðað við áhugann sem raungerðist á fundinum þarf mögulega að færa hann í stærra húsnæði og því hvetjum við öll að fylgjast með Aðdáendaklúbbi Jane Austen á Íslandi í ár.