14.des 2025 20:00

Jólalögin hennar mömmu | Aukatónleikar

Salurinn

Salurinn
8.500 -9.900 kr.

JÓLALÖGIN HENNAR MÖMMU

..því þau má bara ekki vanta, svo einfallt er það!

Hera Björk, Einar Örn, Bjarni “Töfrar” Baldvins & góðir gestir halda áfram að flytja okkur gömlu góðu lögin frá 5. 6. & 7. áratug síðustu aldar og nú er komið að jólalögunum sem lifa enn góðu lífi inni á heimilum landsmanna. Og áfram er það hljómsveit hússins undir stjórn meistara Björns Thoroddsen en hana skipa auk gítarmeistara Björns, Matti Kallio á píanó, Sigfús Óttarsson á Trommur, Jón Rafnsson á bassa og Þórdís Petra Ólafsdóttir í bakraddir & bjöllur eftir þörfum. 

Á þessum tónleikum heyrum við skemmtilegu, rómantísku og rótgrónu jólalögin, þessi sem mömmur okkar og ömmur raula enn yfir jólabakstrinum inni í eldhúsinu um leið og þær eru eitthvað að fást við mat og bæta í sortirnar. 

Heru Björk þarft nú vart að kynna enda hefur hún sungið og skemmt þjóðinni í rúm 30 ár af sinni alkunnu. Bjarni Töframaður hefur að sama skapi töfrað landann upp úr skónum og skemmt í fjölda ára við góðan orðstír þannig að við þurfum ekki mörg orð um hann. Með þeim verður áfram hin ungi Einar Örn “RaggaBjarnabarnabarnabarn” og auðvitað jólabarn með eindæmum. 

HeiðursJólagestur verður hin eina sanna SöngAmma og Mamma HJÖRDÍS GEIRS. 

Þau munu syngja, segja sögur og leiða okkur aftur heim í gamla notalega jólaundirbúninginn með gömlu plötunum, heita kakóinu og heimabökuðu smákökunum.

Ómótstæðileg og heimilisleg jólanostalgía með indælis minningum, melódíum & mömmukossum sem engin má missa af.

Deildu þessum viðburði

15
nóv
Bókasafn Kópavogs
27
nóv
Bókasafn Kópavogs
20:00

Bókaspjall

29
nóv
Bókasafn Kópavogs
30
nóv
Salurinn
05
des
Salurinn
09
des
Bókasafn Kópavogs
11
des
Salurinn
12
des
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

14
des
Salurinn

Salurinn

02
nóv
25
apr
Salurinn
13
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
23
nóv
Salurinn
26
nóv
Salurinn
27
nóv
Salurinn
29
nóv
Bókasafn Kópavogs
30
nóv
Salurinn
05
des
Salurinn

Sjá meira