Verið velkomin á Opnunarhátíð Hamraborgarhátíðar föstudaginn 28. ágúst kl 18:00 á Listatúni!
Klukkan 18:00 opnum við hátíðina formlega á Listatúni og færum okkur svo inn í Salinn. Benni Hemm Hemm og Páll Óskar koma fram ásamt Kvennakórnum Bliku.
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm enda tónleikaferð sína um landið með tónleikum á Hamraborg Festival. Á tónleikaferðinni hafa Páll Óskar og Benni fengið til liðs við sig kóra sem starfa á þeim stöðum sem þeir hafa heimsótt. Hefur þetta skapað sérstaklega skemmtilega stemningu og hafa engir tónleikar verið eins. Á tónleikunum í Salnum kemur Kvennakórinn Blika fram með þeim en Blika starfar í Kópavogi undir stjórn Margrétar Eirar. Á tónleikunum munu Páll Óskar og Benni leika lög af plötu sinni Alveg sem kom út í fyrra og fékk óheyrilega góðar viðtökur en auk þess munu heyrast vinsælustu smellir þeirra beggja í nýjum útsetningum.
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst – 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af listasýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir. Hátíðin er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið þar sem mörg verk bregðast við byggingarlist, sögu og hversdagslífi Hamraborgarsvæðisins. Hægt er að sjá ítarlega dagskrá á heimasíðunni okkar og sækja útprentað kort á sýningarstöðum yfir hátíðarvikuna.
Hamraborg Festival er góðfúslega styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Landsbankanum, Barnamenningarsjóði.
///
Welcome everyone to the Opening ceremony of Hamraborg Festival on Friday the 28th of August at 18:00
At 18:00, we formally open the festival at Listatún followed by a concert by Benni Hemm Hemm and Páll Óskar with Blika Women’s Choir at Salurinn.
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm end their concert tour around the country with a concert at Hamraborg Festival. During the concert tour, Páll Óskar and Benni have been joined by choirs that work in the places they have visited. This has created a particularly pleasant atmosphere and no concerts have been the same. At the concert in Salurinn, the Kópavogur based Blika women’s choir will perform with them, under direction of Margrét Eir. At the concert, Páll Óskar and Benni will play songs from their album Alveg, which was released last year and was extremely well received, but in addition, their most popular hits will be heard in new arrangements.
Hamraborg Festival is an annual, vibrant, week-long celebration of art and community in the heart of Kópavogur. This year’s festival is the 6th edition, and will run from August 28th to September 4th, marking the end of summer with a program of exhibitions, performances, workshops, concerts and public events – open to everyone, free of charge. The festival is built in close collaboration with the local community, with many works responding to the architecture, history, and everyday life of the Hamraborg area.
Follow the detailed program on our website and pick up a printed map.
Hamraborg Festival is kindly supported by: Kópavogsbær, Myndlistarsjóður, Landsbankinn, Barnamenningarsjóður.
















