Þorvaldur Þór Björnsson hefur í rúma fjóra áratugi unnið að því að skrásetja örnefni, teikna kort og skrá fuglategundir á eyjum og skerjum í Breiðafirði. Vinnan, sem hófst sem áhugamál en fór síðar fram á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem hann vinnur nú, hefur skilað þúsundum nákvæmra örnefna til varðveislu.
Í fyrirlestrinum fjallar hann um hvernig þetta áhugamál hans varð að hans megin atvinnu og hverju hann hefur áorkað í vinnu sinni á Breiðafirði.
Aðgangur er ókeypis!
Hvað er? er erindaröð á vegum Náttúrusafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.
Öll velkomin. Viðburðurinn liður af Menningu á miðvikudögum og er styrktur af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
English:
For more than four decades, Þorvaldur Þór Björnsson has worked on recording place names, mapping islands and skerries, and documenting bird species in Breiðafjörður Bay. What began as a personal interest later became part of his work at the Natural Science Institute of Iceland, where he is currently employed. His efforts have resulted in the preservation of thousands of precisely documented place names.
In this lecture, Þorvaldur will discuss how his hobby evolved into his primary profession and share the achievements and discoveries that have come from his work in Breiðafjörður.
Admission is free! Everyone is welcome.























