30.apr 2027 20:00

Blóðbönd | Svala Björgvins og Krummi

Salurinn

Salurinn
8.900-9.900kr.

Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir – sameiginleg rót.
Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim.

Sum lög fylgja manni í gegnum lífið. Önnur verða hluti af fjölskyldunni.

Á tónleikunum Blóðbönd í Salnum í Kópavogi koma systkinin Krummi Björgvinsson og Svala Björgvinsdóttir saman á sviði í fyrsta sinn í þessu samhengi og deila með áhorfendum tónlist sem tengir þau sterkum böndum við föður þeirra, Björgvin Halldórsson, sem lést fyrr á árinu.

Flutt verða lög eftir Krumma og Svölu, ásamt lögum sem Björgvin söng og samdi. Frumsamið efni verður í bland við tökulög og farið verður víða um tónlistarheiminn frá því persónulega yfir í lög sem hafa fylgt fjölskyldunni í gegnum árin. Inn á milli verða sagðar sögur, minningar og kannski eitt og annað sem hefur ekki ratað á svið áður.

Hljómsveitin hans Krumma, Krákurnar, sér um undirspilið og saman ætla þau að eiga með ykkur kvöld þar sem tónlistin fær að leiða áfram, frá einni kynslóð til þeirrar næstu.

Þetta er í fyrsta sinn sem systkinin koma saman á svið með þessum hætti og þau hlakkar gríðarlega til að deila þessu kvöldi með ykkur, tónlistinni, sögunum og minningunum sem fylgja.

Blóðbönd eru stundum ósýnileg. Maður finnur þau í röddinni, í laglínunni og í sögunum sem lifa áfram.

Við vonumst til að sjá ykkur í Salnum í Kópavogi í dásamlegri kvöldstund.

Ásgeir & Steini – 29.janúar
Diddú & Palli – 26.febrúar
Elísabet & Helga Möller – 12.mars
Svala & Krummi – 30.apríl

Deildu þessum viðburði

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

08
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn
09
jan
Salurinn
20
jan
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Salurinn

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn

Sjá meira