Eftir tvenna uppselda tónleika í Salnum Kópavogi og einstakar viðtökur hefur verið ákveðið að bæta við auka tónleikum til að heiðra og minnast einnar ástsælustu og áhrifamestu tónlistarkonu allra tíma, sjálfa Dolly Parton.
Ferill Dollýar spannaði tæp 70 ár snerti hún hjörtu margra með söng og lagasmíðum sínum ásamt einstökum karakter. Í textum Dolly Parton eru sagðar persónulegar sögur sem fólk á auðvelt með að tengja við; sögur um ástir, sorgir, von og seiglu. Löngu klassískir smellir í hennar flutningi eru t.d. „Jolene“, „9 to 5“, „Islands in the Stream“, „Coat of Many Colors“ og „I Will Always Love You“
Þessir glæsilegu heiðurstónleikar munu fanga anda og arfleifð Dolly Parton og samferðamanna hennar eins og Kenny Rogers
Selma verður ekki ein á sviðinu því henni til halds og trausts verður hljómsveit undir stjórn Vignis Snæs.
Ekki missa af þessari einstöku upplifun, tryggðu þér miða strax.





















