16.apr 2025 12:15 - 13:00

Magma gítardúó

Salurinn

Magma gítardúó, Svanur Vilbergsson og Óskar Magnússon,  frumflytur glænýja íslenska tónlist sem hefur sérstaklega verið samin fyrir þetta þetta tilefni. Þeir félagar hafa starfað saman um árabil á einn eða annan hátt og hafa getið sér gott orð sem bæði einleikarar og kammerspilarar hérlendis og erlendis.  

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Efnisskrá

Oliver Kentish                               
Dúó (2025) – frumflutningur

Guðmundur Steinn Gunnarsson
Nýtt verk (2025) – frumflutingur

Daniele Basini                                
Nýtt verk  (2025) – frumflutningur

Svanur Vilbergsson hefur haldið einleikstónleika víða um heim, m.a. í Bandarikjunum, Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu og Írlandi. Hann hefur komið fram í sjónvarpi í Bandaríkjunum og á Spáni og var valinn fyrir Íslands hönd til þátttöku í norsk-íslenska menningarverkefninu Golfstraumurinn. Hann hefur frumflutt fjölmörg verk fyrir gítar, bæði einleiks- og kammerverk en hann er meðlimur í Íslenska gítartríóinu og Stirni Ensemble auk Magma gítardúetts. Árið 2011 kom út fyrsti einleiksdiskur Svans sem kallast Four Works og hefur honum verið einkar vel tekið. Svanur er einn listrænna stjórnenda og stofnenda alþjóðlegu gítarhátíðarinnar Midnight Sun Guitar Festival.

Óskar Magnússon er fæddur 1989 og tók sín fyrstu skref sem rafgítarleikari ungur að aldri. Hann lék í ýmsum hljómsveitum en öðlaðist einnig góðan grunn á bassa og trommur. Á tvítugsaldri fór Óskar að hallast að klassískum gítarleik og lauk hann B. Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og meistaragráðu frá San Francisco Conservatory of Music tveimur árum síðar. Óskar hefur komið víða fram sem einleikari og tekið þátt í ýmsum gítarhátíðum eins og Cordoba Guitar Festival á Spáni, Forum Guitar Festival í Vínarborg, Florida Guitar Foundation í Miami og hlaut hann einnig fyrsta sæti í gítarkeppninni Gohar and Ovanes Guitar Competition í Los Angeles árið 2018.

Viðburðurinn er liður í Menningu á miðvikudögum sem styrkt er af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

11
mar
Gerðarsafn
08
apr
Bókasafn Kópavogs
06
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

10
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

11
mar
Gerðarsafn
12
mar
Bókasafn Kópavogs
12
mar
Salurinn
13
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Salurinn

11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

12
mar
Salurinn
14
mar
Salurinn
15
mar
Salurinn
20
mar
Salurinn
21
mar
Salurinn
25
mar
Salurinn

Sjá meira